Nýjung á markaðnum
Enginn árangur => Enginn kostnaður
Árangur
Stjórnunar ehf. á sviði rekstrargreiningar og rekstrarráðgjafar er
glæsilegur. Þau fyrirtæki sem hafa verið viðskiptavinir okkar á sviði
rekstrargreiningar hafa öll náð að stórbæta rekstrargrundvöll sinn.
Þetta hafa þau rakið til bættra vinnubragða í kjölfar samvinnunnar við
Stjórnun ehf.
Á þessum grunni
byggir Stjórnun ehf. tímamótatilboð til nýrra sem eldri viðskiptavina
sinna. Við ábyrgjumst árangur
rekstrargreiningarinnar. Ef
fyrirtæki eða stofnun sem við tökum í rekstrargreiningu stendur ekki
uppi með bættar rekstrarforsendur að lokinni okkar vinnu þá þarf
viðskiptavinurinn ekkert að greiða fyrir þjónustuna. Hins vegar
blundar enginn efi í herbúðum Stjórnunar ehf. - árangurin lætur ekki á
sér standa. Þau fyrirtæki sem við
tökum í rekstrargreiningu hafa um tvo kosti að ræða til greiðslu
þjónustunnar. Annars vegar að greiða tímagjald og hins vegar að
greiða hlutdeild í þeim rekstrarárangri sem næst með aðgerðum
rekstrargreiningar.
Enginn árangur => enginn kostnaður.
Smelltu hér til að hafa samband
|