Enn betri þjónusta hjá Stjórnun
ehf.
Eitt af megin markmiðum Stjórnunar er
að þjónusta viðskiptavininn framúrskarandi vel. Með það
markmið að leiðarljósi leitum við sífellt nýrra leiða til að auka og
bæta þjónustuna þannig að vegur bæði Stjórnunar og viðskiptavina
okkar megi verða sem mestur.
Stjórnun hefur nú í samstarfi við
dk hugbúnaðarhús tekið í notkun miðlægan
gagnagrunn þar sem við getum boðið viðskiptavinum okkar aðgang að
sínum gögnum með netsambandi. Þannig tökum við til dæmis að
okkur vinnslu launa fyrir viðskiptavin okkar sem getur frá sinni
tölvu skoðað launavinnsluna og prentað út meðal annars
launaseðla og skilagreinar.
|