Viðtal við Jóhann Pétur sem birtist í Morgunblaðinu 8.4.2004
Það hlýtur að heyra
til nýjunga á sviði ráðgjafaþjónustu að ábyrgjast árangur ráðgjafar
með þeim hætti að ekki þurfi að greiða fyrir þjónustuna nema hún skili
viðskiptavininum mælanlegum ábata. Ráðgjafastofan Stjórnun ehf.
í Mosfellsbæ býður fyrirtækjum og stofnunum upp á svokallaða
rekstrargreiningu þeim að kostnaðarlausu, að því tilskyldu að
greiningin skili þeim engum ábáta. "Sé hins vegar sýnt fram á hagnað
eða rekstrarbætur af rekstrargreiningunni þá greiðir fyrirtækið
fyrir," segir Jóhann Pétur Sturluson, framkvæmdastjóri Stjórnunar, og
er þess fullviss að fyrirtækið muni ekki koma illa út úr því.
"Undantekningalaust
hafa þau verkefni sem við höfum tekið að okkur skilað töluverðum ábata
og yfirleitt blasir ábatinn við. Hins vegar er erfiðara fyrir þá sem
fá þjónustuna að átta sig á fyrirfram hvað geti komið út úr henni,"
útskýrir hann. Starfsemi Stjórnunar ehf. byggir á stjórnunar-,
rekstrar- og fjármála ráðgjöf og mannauðsstjórnun auk þess sem nýlega
er farið að bjóða upp á umhverfisstjórnun fyrir fyrirtæki jafnt sem
sveitarfélög. Fyrirtækið tekur ennfremur að sér hýsingu ýmissa
rekstrarþátta þ.á.m. hýsingu framkvæmdastjórnar, starfsmannamála og
skrifstofuhalds.
Upphafið að
Stjórnun má rekja til bókhaldsþjónustu sem eigandinn, Jóhann Pétur,
rak frá árinu 1990. Með aukinni menntun Jóhanns á sviði viðskipta,
stjórnunar og stefnumótunar færðist starfsemi fyrirtækis hans hins
vegar í það horf sem nú er, að vera ráðgjafastofa. Jóhann Pétur
segir að stærstur hluti þeirra verkefna sem fyrirtækið fáist við hafi
með rekstrarráðgjöf að gera, þá sér í lagi svokallaða
rekstrargreiningu þar sem beitt sé mörgum ólíkum aðferðum
stjórnunarfræða til að efla og styrkja markaðsstöðu tiltekinnar
rekstrareiningar. "Rekstrargreiningin felst í að farið er inn í
fyrirtæki og reksturinn krufinn m.a. með skoðun á bókhaldsgögnum og
aðferðum mannauðsstjórnunar. Þetta er gert með það fyrir augum að
finna þætti sem má færa til betri vegar og vinna út frá til breytinga
hjá viðkomandi fyrirtæki," segir hann.
Jóhann Pétur er
eini eigandi Stjórnunar og annar tveggja fastra starfsmanna. Hann
segir markmiðið vera að takmarka fjölda starfsmanna og utanumhald um
rekstur Stjórnunar. Hins vegar nýti hann viðamikið tengslanet við
sérfræðinga á ýmsum sviðum með þeim hætti að þegar unnið er í stærri
verkefnum eða sérhæfðari verkefnum, kalli hann til aðstoðar viðeigandi
sérfræðinga eftir því sem þurfa þykir. Að sama skapi segir hann ekki
þurfa mikla yfirbyggingu um reksturinn enda fari starfsemin fram meira
og minna inni í þeim fyrirtækjum sem Stjórnun ehf. vinnur fyrir hverju
sinni.
Hýsing
stjórnunarþátta er nokkuð sem hefur verið að aukast á Íslandi og
Jóhann Pétur segir þann þátt vaxandi í starfsemi Stjórnunar. Það byrji
gjarnan með hýsingu fjármála þ.e. að Stjórnun taki að sér umsjón
fjármála í minni fyrirtækjum eða samningagerð. Í einstaka tilfellum
hafi verið um að ræða hýsingu alls skrifstofuhaldsins, t.d.
launavinnslu, greiðslu reikninga og þess háttar. En Stjórnun gengur
skrefinu lengra og býður upp á hýsingu framkvæmdastjórnar, þ.e. tekur
að sér yfirstjórn lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Um hvort
stjórnendur fyrirtækja séu tilbúnir til að láta stjórnunina af hendi
segir Jóhann Pétur að slíkt gerist ekki nema búið sé að byggja upp
traust og reynsla sé komin á samskiptin. Hann segir hýsingu
framkvæmdastjórnar henta í nánast hvers konar starfsemi en Stjórnun
hafi mest starfað á byggingarsviði, með byggingarverktökum sem vilja
einbeita sér að því sem þeir eru sérfræðingar í en hafi litla reynslu
af stjórnunarlegum þáttum svo sem samningagerð.
Jóhann Pétur
kannast ekki við að eiga sér neina ákveðna keppinauta en nefnir þó
stórar endurskoðunarskrifstofur sem hafi á að skipa ýmiskonar
sérfræðingum. Hann líti samt ekki á þær sem beina keppinauta.
Smelltu hér til að hafa samband
|