Umhverfisstjórnun
Mikilvægi
umhverfisstjórnunar í rekstri fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka
fer vaxandi. Með umhverfisstjórnun geta stjórnendur hagrætt ýmsum
þáttum rekstursins á þann veg að bæði náttúran og fyrirtækið njóta
góðs af um leið og ábyrg afstaða er tekin til umhverfisins. Slík
afstaða getur haft mikilvæg áhrif á ímynd fyrirtækisins út á við.
Segja má að meginmarkmið umhverfisstjórnunar sé að hafa stjórn á
umhverfisþáttum í starfsemi fyrirtækja og sýna fram á stöðugar
umbætur á sviði umhverfismála.
Dæmi
um ábata fyrirtækisins:
- Ný þekking skapast
innan fyrirtækisins og auðveldara er að spá fyrir um framtíðina þar
sem úttekt hefur verið gerð á framleiðsluferli s.s. efnisnotkun.
- Styrkari staða
fyrirtækisins á markaði því framleiðslukostnaður lækkar.
- Rekstrargjöld lækka
þar sem efniskostnaður og kostnaður við förgun lækkar.
- Bætt ímynd,
jákvæðari umfjöllun og aukin velvild í garð fyrirtækisins.

Heiða Björk Sturludóttir
Forst.maður umhverfissviðs
Heiða Björk lauk mastersnámi í stjórnun og stefnumótun umhverfismála
frá Universidad de Carlos III í Madrid vorið 2000.
Hún hefur starfað við verkefnisstjórn í landbúnaði, umhverfisráðgjöf
s.s. gerð umhverfisstefnu og umhverfsisáætlunar fyrir framhaldsskóla,
Staðardagskrá 21, Norrænt samstarfsverkefni um gerð hugmyndahandbókar
um umhverfisverkefni, Vistvernd í verki og gerð útvarpsþáttar um
umhverfismál og kennslu í framhaldsskóla.
heida@stjornun.is
|